Doctor Who

From Wikipedia, the free encyclopedia

Doctor Who
Remove ads

Doctor Who er vísindaskáldsögusjónvarpsþáttur sem er framleiddur af BBC. Þættirnir fjalla um „doktorinn“ sem er tímalávarður utan úr geimnum. Hlutverk hans er að vernda jörðina og aðrar plánetur og íbúa þeira í nútíð, framtíð og fortíð. Doktorinn getur bjargað sér frá dauða en við það breytist útilit hans og persónuleiki. Doktorinn fær oftast jarðarbúa í lið með sér sem ferðafélaga. Tímavél og farartæki doktorsins kallast Tardis og lítur út eins og breskur lögregluklefi. Tardis stendur fyrir „Time And Relative Dimension in Space“.

Thumb
Tardis sem BBC hefur notað frá 2010.

Þættirnir eru með langlífustu sjónvarpsþáttum heims sem ganga út á vísindaskáldskap. Þeir hófu göngu sína þremur árum áður en framleiðsla Star Trek-þáttanna hófst. Alls hafa verið sýndir í breska sjónvarpinu 892 þættir í 41 þáttaröð; en það er samanlagður fjöldi gömlu þáttanna, sem fyrst voru sýndir á árunum 1963–1989, og nýju þáttanna sem sýndir hafa verið frá árinu 2005. Í gömlu þáttunum skiptist hver saga niður á tvo til sex þætti sem hver var 25 mínútur að lengd. Í nýju þáttaröðunum er hver þáttur 45 mínútur. Flestir þeirra eru heil saga, en nokkrir framhaldssaga í tveimur þáttum. Alls eru 97 af elstu þáttunum (aðallega úr þáttaröðum 3, 4 og 5) taldir glataðir, þar sem BBC eyddi reglulega gömlu sjónvarpsefni úr safni sínu. Tekist hefur að finna nokkra eldri þætti hjá erlendum sjónvarpsstöðvum. Sumir af þessum týndu þáttum hafa verið endurgerðir sem teiknimyndir út frá varðveittum hljóðrásum og handritum.[1]

Þættirnir um Doctor Who hafa lengi notið mikilla vinsælda í Bretlandi og víðar og eru mikilvægur hluti af breskri afþreyingarmenningu. Vinsældir elstu þáttanna voru slíkar að talað var um „Dalekaæðið“ á 7. áratugnum. Þeir hafa haft áhrif á nokkrar kynslóðir breskra sjónvarpsáhorfenda, og getið af sér myndasögur, skáldsögur og útvarpsþætti. Aðrar sjónvarpsþáttaraðir sem Doctor Who gat af sér eru Torchwood (2006–2011), The Sarah Jane Adventures (2007–2011), K9 (2009–2010) og Class (2016).

Remove ads

Saga

Doctor Who voru hugsaðir sem fræðandi fjölskylduþættir þar sem vísindaleg þekking og frægir atburðir úr mannkynssögunni væru kynnt með sögum um tímaflakk.[2] Fyrsti þátturinn var sýndur á BBC Television Service klukkan 17:16:20 þann 23. nóvember 1963. Útsendingin tafðist um rúma mínútu vegna fréttatilkynninga um morðið á John F. Kennedy daginn áður.[3] Þættirnir voru á dagskrá vikulega og hver þáttur var 25 mínútur að lengd. Undirbúningur hafði staðið í ár á undan. Yfirmaður leikins efnis hjá BBC, Sydney Newman, bar ábyrgð á framleiðslu þáttanna og hann skrifaði fyrstu lýsinguna á þeim, ásamt Donald Wilson úr handritadeild og C. E. Webber handritshöfundi. Wilson hélt því fram í viðtali árið 1971 að nafnið væri frá honum komið.[4] Aðrir sem komu að gerð fyrstu þáttaraðarinnar voru handritshöfundurinn Anthony Coburn, ritstjórinn David Whitaker og framleiðandinn Verity Lambert.[2] Upphafslag þáttanna var samið af Ron Grainer, en útfært af raftónlistarkonunni Delia Derbyshire með því að nota stillitóna úr ýmsum tækjum og önnur hljóð sem voru sett saman með því að klippa og afrita segulbönd á mismunandi hraða.[5]

Thumb
Leikfangadalek frá 1966.

Þann 31. júlí bað Whitaker Terry Nation um að skrifa handrit að fyrsta þættinum með vinnuheitið „The Mutants“ („hinir stökkbreyttu“). Nation skrifaði handritið að því sem varð 2. þáttur Doctor Who sem fjallar um stríð milli hinna herskáu Daleka (sem Nation byggði á þýskum nasistum) og hinna friðelskandi Thals. Þegar Wilson fékk handritið hafnaði hann því strax, því hann var á móti því að þættirnir snerust um geimskrímsli. Þátturinn var hins vegar framleiddur því samkvæmt Lambert hafði framleiðsluteymið ekkert annað í höndunum. Dalekarnir (líka þekktir sem „hinir stökkbreyttu“) urðu hins vegar svo vinsælir að talað var um „Dalekaæðið“ í Bretlandi á 7. áratugnum.[6] Dalekarnir voru líka fyrsti söluvarningurinn sem BBC framleiddi.[7]

Remove ads

Doktorar

Fjórtán leikarar hafa tekið að sér hlutverk doktorsins í sjónvarpsþáttunum. Þegar skipt er um leikara er það skrifað inn í þættina sem endurholdgun doktorsins í kjölfar alvarlegra meiðsla. Nokkrir aðrir leikarar hafa spreytt sig á hlutverkinu í aukaþáttum, kvikmyndum og útvarpsþáttum, meðal annars Peter Cushing, John Hurt, Derek Jacobi og Richard E. Grant.

Eldri þættirnir (1963–1989/1996)

Nánari upplýsingar Leikari, Þáttaraðir ...

Nýju þættirnir (frá 2005)

Nánari upplýsingar Leikari, Þáttaraðir ...
Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads