Eiffelturninn

turn í París í Frakklandi From Wikipedia, the free encyclopedia

Eiffelturninnmap
Remove ads

48°51′29.6″N 2°17′40.2″A

Thumb
Eiffelturninn
Thumb
Eiffelturninn

Eiffelturninn er járnturn á Champ de Mars í París á vinstri bakka árinnar Signu. Er hæsta bygging í París og eitt af þekktustu kennileitum í heiminum. Turninn er nefndur eftir hönnuðinum, Gustave Eiffel og er frægur ferðamannastaður. Eiffelturninn var byggður fyrir heimsýninguna í París árið 1889 og er 324 metrar að hæð og vegur 7300 tonn. Mögulegt er að ganga hluta leiðarinnar upp í turninn eða 1660 þrep en taka verður lyftur til þess að komast á toppinn.

Í frétt í vestur-íslenska vikublaðinu Lögbergi var sagt frá því árið 1911 að Frakkar væri að hugsa um að nota Eiffelturninn sem haglhlíf fyrir Parísarborg:

Með því að senda út frá turninum rafmagnsstraum er ætlast til að verja megi borgina á tuttugu mílna löngu sviði allt umhverfis fyrir hagli, rétt eins og sólhlíf hlífir manni við sólargeislunum það sem hún nær til.[1]
Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads