Erie-vatn
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Erie-vatn (enska Lake Erie, franska: Lac Érié) er eitt fimm Vatnanna miklu. Það er næstminnst þeirra að flatarmáli eða tæplega 26.000 ferkílómetrar. Það er grynnst vatnanna og mesta dýpi þess nær aðeins 64 metrum. Erie-vatn liggur að kanadíska fylkinu Ontario í norðri og bandarísku fylkjunum Ohio, Pennsylvaníu og New York í suðri og austri. Það er nefnt eftir Erie-frumbyggjum sem bjuggu á suðurströnd þess.





Helsta fljót sem rennur í það er Detroit-fljót. Niagara-fljót er helsta afrennsli þess. Í því eru vatnsaflsvirkjanir sem framleiða rafmagn sem nýtt er bæði í Kanada og Bandaríkjunum. Stærstu borgir við vatnið eru í Bandaríkjunum; Buffalo (New York), Erie (Pennsylvania), Toledo (Ohio) og Cleveland (Ohio). Mengun og ofauðgun hafa verið vandamál við Erie-vatn. Atvinnuveiðar hafa minnkað undanfarna áratugi en frístundaveiði er algeng.
Erieskurður er einn elsti skipaskurður Bandaríkjanna.
Point Pelee-þjóðgarðurinn í Ontaríó er á norðurströnd vatnsins.

Remove ads
Heimild
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Erie-vatni.
Fyrirmynd greinarinnar var „Lake Erie“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 13. feb. 2017.
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads
