Fæðingarorlofssjóður
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Fæðingarorlofssjóður var stofnaður árið 2000. Sjóðnum er ætlað að ákvarða og annast greiðslur fæðingarorlofs, fæðingarstyrkja og ættleiðingarstyrkja auk þess sem sjóðurinn annast upplýsingagjöf til foreldra um réttindi þeirra.[1]
Sjóðurinn heyrir undir félags- og barnamálaráðherra og hefur verið í vörslu Vinnumálastofnunar frá árinu 2007 en sama ár var starfsemi sjóðsins flutt til Hvammstanga.[2]
Fæðingarorlofssjóður er fjármagnaður með tryggingagjaldi, sem er gjald sem vinnuveitendur greiða af heildarlaunum starfsfólks síns, og vöxtum af innistæðum sjóðsins.
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads