Geðrof

From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

Geðrof er ástand þar sem einstaklingur á erfitt með að greina hvað sé raunverulegt. Oftast koma fram ranghugmyndir, ofskynjanir, skert raunveruleikatengsl, og stundum ruglingslegt tal og undarleg hegðun. Svefnvandamál, félagsleg einangrun, og áhugaleysi eru algeng.[1]

Sumir fara aðeins einu sinni í geðrof, sumir fá nokkur köst yfir ævina. Hjá sumum koma geðrofseinkenni fram aftur og aftur og flokkast sjúkdómurinn þá undir geðklofa.[2]

Orsakir geðrofs geta verið margvíslegar: Geðsjúkdómar (geðklofi, geðhvarfasýki, þunglyndi, jaðar­persónuleikaröskun), sálræn áföll, svefnskortur, elliglöp, sum lyf, og sum vímuefni líkt og áfengi, kannabis, kókaín, amfetamín, LSD, og ketamín. Koffín getur gert einkenni verri hjá þeim sem eru með geðklofa.[3] Um 0,1% af nýbökuðum mæðrum fer í geðrof.[4]

Geðrof eru meðhöndluð með geðrofslyfjum, sálfræðimeðferð, og með félagslegum stuðningi. Um 3% fólks fer í geðrof einhvern tímann á ævinni.[1] Talið er að ofvirkni taugaboðefnisins dópamíns eigi þátt í geðrofi, það sem styður þá kenningu er helst það að geðrofslyf virka með því að hemja dópamínviðtaka, og þau lyf og vímuefni sem auka magn dópamíns við taugaviðtaka geta valdið geðrofi.[5]

Remove ads

Tenglar

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads