Hamstur

From Wikipedia, the free encyclopedia

Hamstur
Remove ads

Hamstrar tilheyra Cricetidae, stórri ætt nagdýra. Þeir eru af undirætt hamstra (Cricetinae) sem telur um 25 tegundir í 6-7 ættkvíslum. Það eru til hamstrar af ýmsum stærðum, loðhamstrar, dverghamstrar og gullhamstrar. Hamstrar lifa yfirlett í 3-4 ár en Roborovski-hamsturinn er langlífastur þessara tegunda. Algengustu tegundirnar sem haldnar eru sem gæludýr eru dverghamstrar og gullhamstrar. Kjörlendi ýmissa hamstrategunda er þurrlendi, jafnvel eyðimerkur. Hamstrar lifa villtir í Evrópu og Asíu, oft við ár þar sem þeir grafa sér göng. Þeir sofa á daginn en eru virkir í rökkri og að nóttu. Þeir eru nærsýnir og litblindir. Karldýrin verða 70-140 grömm og kvendýrin 95-150 grömm. Ungar í einu goti eru frá 4-12.

Staðreyndir strax Vísindaleg flokkun ...

Hamstrar eru algeng gæludýr um allan heim. Algengustu sjúkdómar hamstra eru augnsýkingar, maurar og lýs, kvef og lungnasýkingar. Hamstrar éta nýtt gras, hey, hnetur og fræ, hrátt grænmeti og ávexti. Þeir þurfa að hafa fóður allan sólarhringinn og ferskt vatn.

Remove ads

Ættkvíslir

Ættkvísl Allocricetulus

  • A. curtatus
  • A. eversmanni

Ættkvísl Cansumys

  • C. canus -

Ættkvísl Cricetulus

  • C. alticola
  • C. barabensisKínadverghamstur
  • C. griseus
  • C. kamensis
  • C. longicaudatus
  • C. migratorius
  • C. obscurus
  • C. pseudogriseus
  • C. sokolovi

Ættkvísl Cricetus

  • C. cricetus - Hamstur

Ættkvísl Mesocricetus - Gullhamstrar

  • M. auratus - Gullhamstur
  • M. brandti -
  • M. newtoni -
  • M. raddei -

Ættkvísl Phodopus- Dverghamstrar

  • P. campbelli
  • P. roborovskii - Eyðimerkurhamstur
  • P. sungorus

Ættkvísl Tscherskia

  • T. triton
Remove ads

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads