Hof í Hjaltadal

Bær í Hjaltadal í Skagafirði From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

Hof er bær í Hjaltadal í Skagafirði, landnámsjörð Hjalta Þórðarsonar að sögn Landnámabókar, og þar segir líka að á Hofi hafi verið hin fjölmennasta og ágætasta erfidrykkja á landinu, sem synir Hjalta héldu eftir föður sinni.[1]

Á Hofi er mikið af fornminjum sem ekki hafa verið rannsakaðar svo neinu nemi en svo virðist sem þar hafi verið stórbýli en búseta hafi lagst þar af á 11. öld og bærinn fluttur í Hóla, sem eru örskammt frá Hofi. Byggð virðist hafa verið stopul á Hofi allt til 1827 en þá var reist þar hjáleiga frá Hólum.[2]

Bærinn stendur á háum hól og segir sagan að þar hafi virki Hjaltasona verið.[2]

Remove ads

Heimildir

  • Landið þitt Ísland - Bindi H-K bls 86- Þorsteinn Jósepsson og Steindór Steindórsson

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads