Morse lögreglufulltrúi
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Morse lögreglufulltrúi (enska: Inspector Morse) eru breskir sakamálaþættir byggðir á sögum Colin Dexter sem voru sýndir á bresku sjónvarpsstöðinni ITV frá 1987 til 2000. Aðalpersónur þáttanna eru rannsóknarlögreglumaðurinn Morse (leikinn af John Thaw) og aðstoðarmaður hans Lewis (Kevin Whately). Sögusvið þáttanna er borgin Oxford og nágrenni hennar og mörg sakamálin tengjast Oxford-háskóla. Colin Dexter birtist sem aukaleikari í næstum öllum þáttunum. Þættirnir voru 2 tíma langir og eru 33 talsins. Þeir skiptast í 8 þáttaraðir með 3-5 þætti hver. Fyrstu sjö þáttaraðirnar voru sýndar nokkuð reglulega frá 1987 til 1993, en síðasta þáttaröðin var fimm þættir sem voru frumsýndir einn á ári frá 1995 til 2000.

Árið 2018 voru þættirnir valdir bestu bresku sakamálaþættir allra tíma af lesendum Radio Times.[1] Árið 2000 voru þeir settir í 42. sæti lista yfir 100 bestu bresku sjónvarpsþættina sem British Film Institute tók saman.[2]
Tvær tengdar sjónvarpsþáttaraðir hafa verið gerðar eftir 2000: framhaldsþættirnir Lewis (2006-2015) og forsöguþættirnir Endeavour (2012-2023).
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads