Karþagó
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Karþagó (úr fönísku: QRT HDŠT, með sérhljóðum: Qart-Hadasht, „Nýjaborg“) var borg í Norður-Afríku austan megin við Túnisvatn, beint á móti borginni Túnis. Hún var stofnuð um 814 f.Kr. af Föníkum (Púnverjum), og íbúar hennar voru kallaðir Púnverjar.

Borgin varð miðstöð verslunar við Miðjarðarhafið á 6. öld f.Kr. og átti í átökum fyrst við Forngrikki í Sikileyjarstríðunum á 5. og 4. öld f.Kr., og síðar við Rómverja í púnversku stríðunum á 3. og 2. öld f.Kr. Þriðja púnverska stríðið endaði með algerri eyðingu borgarinnar, þegar Rómverjar lögðu hana í rúst.
Á síðari hluta 2. aldar e.Kr. reis Karþagó aftur sem höfuðstaður rómverska skattlandsins Afríku. Borgin varð síðar hluti af veldi Býsans þar til hún féll fyrir arabískum innrásarherjum undir lok 7. aldar.
Remove ads
Tenglar
- „Hvers galztu Karþagó, sem áttir eitt sinn hvíta, vaska syni?“; grein í Sunnudagsblaðinu 1959
- „Það á ekki að leggja Karþagó í rústir“; grein í Heimilistímanum 1974
- „Sjóveldi Púnverja“; grein í Sjómannablaðinu Víkingi 1945
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads