Mark Twain
bandarískur rithöfundur (1835-1910) From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Samuel Langhorne Clemens (30. nóvember 1835 – 21. apríl 1910), betur þekktur sem Mark Twain, var bandarískur rithöfundur sem varð gríðarlega vinsæll bæði sem rithöfundur og fyrirlesari á sinni tíð. Hann fæddist í Missouri í Suðurríkjunum og vann meðal annars sem stýrimaður á fljótabáti á Mississippifljóti. Þegar Þrælastríðið brast á myndaði hann herflokk með félögum sínum en lenti aldrei í átökum og hélt með bróður sínum vestur til Nevada þar sem hann reyndi meðal annars fyrir sér í námavinnslu en gekk illa. Eftir þetta fékk hann vinnu við dagblað í Virginia City í Nevada og tók upp rithöfundarnafnið Mark Twain 1863.

Frægasta verk hans er skáldsagan Stikilberja-Finnur (The Adventures of Huckleberry Finn) sem er talin með sígildum meistaraverkum bandarískra bókmennta þar sem hann blandar saman kímni, óhefluðu alþýðumáli og beittri samfélagsgagnrýni. Önnur þekkt verk eru Sagan af Tuma litla (The Adventures of Tom Sawyer) og Heiðurspiltur í hásæti (The Prince and the Pauper).
Remove ads
Tenglar

Wikivitnun er með safn tilvitnana á síðunni Mark Twain.

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Mark Twain.
- Mark Twain; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1935
- Háðfugl sem enn er deilt um; grein í Morgunblaðinu 1985
- Smásögur af Mark Twain; grein í Reykjavík 1910
- Ástarævintýri frá miðöldum; smásaga eftir Mark Twain; birtist í Lesbók Morgunblaðsins 1945
Remove ads
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads