Mehmet Ali Ağca

From Wikipedia, the free encyclopedia

Mehmet Ali Ağca
Remove ads

Mehmet Ali Ağca (fæddur þann 9. janúar 1958) er fyrrum meðlimur í tyrknesku fasistahreyfingunni Gráu úlfunum. Ağca er frægur fyrir að hafa skotið Jóhannes Pál páfa 2. á Péturstorginu í Róm þann 13. maí 1981. Páfi lifði tilræðið af og heimsótti Ağca síðar í fangelsi til að fyrirgefa honum.[1]

Staðreyndir strax Fæddur, Þjóðerni ...

Eftir að hafa setið 19 ár í fangelsi á Ítalíu, og svo fimm ár til viðbótar í tyrknesku fangelsi fyrir morðið á ritstjóra vinstrisinnaðs dagblaðs, var Ağca látinn laus úr fangelsi á skilorði þann 12. janúar 2006. Hæstiréttur Tyrklands fyrirskipaði hins vegar þann 20. janúar sama ár að hann skyldi handtekinn aftur á þeim grundvelli að ekki væri hægt að draga dvöl hans í fangelsi á Ítalíu frá afplánun hans í Tyrklandi. Honum var endanlega sleppt úr fangelsi árið 2010.[2]

Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads