Hnúðlax

From Wikipedia, the free encyclopedia

Hnúðlax
Remove ads

Hnúðlax (fræðiheiti: Oncorhynchus gorbuscha) er laxategund sem á ættir sínar að rekja til Kyrrahafs. Hnúðlax er einnig þekktur undir nafninu bleiklax. Hnúðlax er algengasta laxategundin á Kyrrahafssvæðinu.

Staðreyndir strax Ástand stofns, Vísindaleg flokkun ...
Remove ads

Einkenni

Nafnið hnúðlax er dregið af hnýði sem myndast á baki kynþroska hængs. Hængarnir eru auðþekkjanlegir á húði þessum. Hrygnan þekkist á fíngerðu hreistri og hringlaga dökkum bletti á sporðblöðkum. Hrygnunni er stundum ruglað saman við atlantshafslax en þó er áberandi munur ef vel er að gáð.

Lífsferill

Hnúðlax er sá lax sem hefur stystan lífsferil af löxum í Kyrrahafinu eða um 2 ár frá hrogni til kynþroska lax. Hnúðlax er fremur lítill og er meðalþyngd frá 1,75 til 2,5 kg, þó eru alltaf undantekningar og finnast laxar allt að 6 kg.

Hnúðlaxar eru ólíkir atlantshafslaxinum að því leyti að hnúðlaxar hrygna neðst í ám á meðan atlantshafslaxinn ferðast oft langt upp með ánni til að hrygna. Hnúðlax er mjög sjógengur í eðli sínu og gengur hann strax til sjávar eftir að hann kemur úr eggjunum. Hnúðlax lifir ekki eftir hrygningu svo segja má að líf þeirra sé fremur stutt.

Remove ads

Útbreiðsla í Evrópu

Hnúðlax lifir í Kyrrahafinu og er mest veidda laxategund Norður-Kyrrahafs. Hann finnst sem flækingur í Evrópu en hann kemur að öllum líkindum frá Rússlandi. Í Rússlandi voru gerðar tilraunir til að sleppa hnúðlaxaseiðum í ár á Kólaskaga, Eftir nokkrar tilraunir varð til sjálfbær laxastofn á Kólaskaga og er talið að hann hafi dreift sér að einhverju leyti. Talið er að hnúðlax sé að ná fótfestu í nokkrum ám í Noregi. Sá Hnúðlax sem veiðist á íslandi er talinn koma frá Noregi. Lítið veiðist af hnúðlaxi á Íslandi en þó veiðast nokkrir á ári sem eru taldir flækingar. Á Íslandi er atlantshafslax eini sjálfbæri laxastofninn.

Heimildir

  • „Hvað er hnúðlax og hvaðan kemur hann?“. Vísindavefurinn.
  • Fróðleikur um Hnúðlax (Oncorhynchus gorbuscha) Geymt 27 nóvember 2020 í Wayback Machine
  • Óvelkominn gestur sem gæti numið hér land (Fiskifréttir 11. ágúst 2017)
  • Har du fått pukkellaks i sommer? 17.7.2017 Norsk institutt for naturforskning
  • Gunnar Jónsson (1983). Íslenskir fiskar. Fjölvaútgáfan, Reykjavík 519 bls.
  • Þór Guðjónsson (1961). Occurrence of Pink Salmon (Onchorhyncus gorbucha) in Iceland in 1960 and 1961. ICES. Salmon and trout committee. 4 p.
Remove ads

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads