Paskal
mælieining fyrir þrýsting From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Paskal (franska: Pascal) er SI-mælieining fyrir þrýsting, táknuð með Pa. Eitt paskal jafngildir þrýstingi vegna kraftsins eitt njúton á hvern fermetra. Einingin er nefnd eftir Blaise Pascal, frönskum stærð-, eðlis- og heimspekingi.

Hektópaskal, táknað hPa, er 100 pasköl og er almennt notað í veðurfræði til að gefa loftþrýsting, jafngilt einu millíbari.
Skilgreining
1 Paskal (Pa) = 1 N/m2 = 1 J/m3 = 1 kg·m–1·s–2
SI margfeldi
Þessi SI eining er nefnd eftir Blaise Pascal. Eins og með allar aðrar SI einingar, sem eru nefndar eru eftir mönnum, þá er fyrsti stafurinn í tákninu ritaður með hástaf (Pa). Hinsvegar byrja heiti SI einingar á lágstaf (paskal). Undantekning sem fylgir reglunni er „gráða Celsíus“. |
Remove ads
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads