Pelé

Brasilískur knattspyrnumaður (1940–2022) From Wikipedia, the free encyclopedia

Pelé
Remove ads

Edson Arantes do Nascimento eða Pelé (f. 23. október 1940, d. 29. desember 2022) var brasilískur knattspyrnumaður. Hann spilaði sem framherji og er talinn einn bestu leikmanna allra tíma.

Staðreyndir strax Upplýsingar, Yngriflokkaferill ...

Pele skoraði 1.281 mörk í 1.366 leikjum en sumir leikjanna voru óopinberir. Heimsmetabók Guinness viðurkennir metið en FIFA ekki. Samt sem áður er hann meðal markahæstu manna allra tíma.

Pelé hóf að spila með brasilíska liðinu Santos FC aðeins 15 ára gamall og brasilíska landsliðinu 16 ára gamall. Með Santos vann hann 6 brasilíska deildartitla, ásamt fleiri titlum í fylkinu Sao Paulo (Campeonato Paulista keppnin) og bikartitla.

Hann vann 3 heimsmeistaratitla með landsliðinu: 1958, 1962 og 1970. Eftir að hann lagði skóna á hilluna starfaði hann í þágu knattspyrnu á ýmsan máta.

Pelé lést árið 2022 en hann hafði glímt við veikindi síðustu árin. [1]

Árið 1991 heimsótti hann Ísland og fór víða um landið og kynnti sér knattspyrnu. [2]

Remove ads

Tenglar

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads