Kínafura
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Kínafura (fræðiheiti: Pinus tabuliformis[2][3]) er barrtré af þallarætt ættuð frá norður Kína frá Liaoning vestur til Innri-Mongólíu og Gansu, og suður til Shandong, Henan og Shaanxi, og einnig norður Kóreu. Í sumum eldri textum er hún ranglega skráð "Pinus tabulaeformis".
Remove ads
Lýsing
Pinus tabuliformis er meðalstórt sígrænt tré, um 20–30 m hátt, með flatri krónu fullþroskað (þaðan fræðiheitið, 'borð-laga'). Vöxturinn er hraður meðan það er ungt, en hægist á með aldrinum. Grábrúnn börkurinn springur snemma miðað við önnur tré. Breiður vöxturinn er mjög greinilegur, að hluta vegna láréttrar greinabyggingar.
Barrið er gljáandi grágrænt, 10–17 sm langt og 1.5 mm breitt, yfirleitt tvö saman en stöku sinnum þrjú á kröftugum greinaendum á ungum trjám. Könglarnir eru grænir og verða brúnir við þroska sem er 20 mánuðum eftrir frjóvgun, breiðegglaga, 4–6 sm langir, með breiðum köngulskeljum, hver skel með litlum gaddi. Fræin eru 6–7 mm löng með 15–20 mm væng, og er dreift með vindi.
- Afbrigði
Það eru tvö afbrigði:
- Pinus tabuliformis var. tabuliformis. Kína, fyrir utan Liaoning. Breiðustu köngulskeljar minna en 15 mm breiðar.
- Pinus tabuliformis var. mukdensis. Liaoning, Norður Kórea. Breiðustu köngulskeljar meira en 15 mm breiðar.
Sumir grasafræðingar telja hina skyldu Pinus henryi og Pinus densata sem afbrigði ; í sumum eldri textum er jafnvel Yunnanfura (Pinus yunnanensis) talin sem afbrigði taívanfuru.
Remove ads
Nytjar og ræktun
Viðurinn er notaður í byggingar. Viðarmassinn ("pulpwood") inniheldur viss resín sem eru notuð í tilbúningi á vanillu bragðefni (vanillín). Trjákvoðan er einnig notuð í framleiðslu á terpentínu og skyldum efnum, og er notaður til lækninga. Börkurinn er uppspretta tannína. Notkun á furunálum til lækninga kemur einnig fyrir, en þær innihalda náttúruleg skordýraeitur, sem og notkun til litunar.
Tilvísanir
Viðbótarlesning
Ytri tenglar
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads