Prins Póló

From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

Prins Póló er súkkulaði frá Póllandi sem notið hefur vinsælda hjá íslenskum neytendum um áratugaskeið. Það er selt undir heitinu Prince Polo í Póllandi og víða annars staðar, en hefur verið selt undir heitinu Siesta í Tékklandi, Slóvakíu og Ungverjalandi.[1]

Thumb
Prins Póló brotið í tvennt.

Saga

Sælgætistegundin var kynnt til sögunnar árið 1955 af fyrirtækinu Olza í Cieszyn í sunnanverðu Póllandi. Það varð þegar vinsælt meðal heimamanna og varð snemma útflutningsvara til grannþjóðanna þar sem það hefur haft góða markaðshlutdeild til þessa dags.

Sama ár og varan kom á markað gerðu Íslendingar og Pólverjar vöruskiptasamning, þar sem Pólverjar keyptu fiskafurðir en í staðinn var nauðsynlegt að finna pólskar neysluvörur sem Íslendingum féllu í geð. Heildsala Ásbjörns Ólafssonar tryggði sér umboðið fyrir Prins Póló og snúið var á strangar innflutningsreglur á erlendu sælgæti með því að skilgreina vöruna sem kex.

Þegar best lét átu Íslendingar að meðaltali eitt kíló af Prins Póló á mann á ársgrundvelli, en á árinu 2014 stóð talan í hálfu kílói.[2]

Remove ads

Prins Póló í dægurmenningu

Heimildir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads