Raman Pratasevítsj
Hvítrússneskur blaðamaður og stjórnarandstæðingur From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Raman Dzmitrievitsj Pratasjevitsj (f. 1995) (hvítrússneska: Раман Дзмітрыевіч Пратасевіч) er hvítrússneskur blaðamaður og stjórnarandstæðingur. Pratasevitsj hefur verið ásakaður af hvítrússneskum stjórnvöldum um ólöglegar samkomur og hvatningu til óeirða. Hann hefur verið settur á lista yfir hryðjuverkamenn. Pratasevitsj rak stöðina Nexta sem fjallaði um forsetakosningarnar 2020 í landinu og var uppspretta heimilda um ólögmætar kosningaaðferðir og mótmæla tengd þeim. Hann hefur búið í Póllandi frá 2019.

Þann 23. maí var flugvél Ryanair frá Aþenu til Vilníus þar sem Pratasevitsj var um borð beint til Hvítarússlands af herþotum landsins. Flugmálayfirvöld í Hvíta-Rússlandi sögðu að það hefði verið vegna sprengjuhótunar en litáísk flugmálayfirvöld höfðu ekki fengið fregnir af slíku. Pratasevitsj og kærasta hans Sophia voru handtekin við komu á flugvöllinn í Minsk.
Evrópusambandið ákvað í kjölfarið að setja viðskiptaþvinganir á Hvíta-Rússland og bannaði flug frá landinu til Evrópusambandsins. [1]
Eftir handtöku Pratasevitsj birtist hann í sjónvarpsviðtali þar sem hann sagðist hafa skipt um skoðun á hvítrússneska forsetanum Alexander Lúkasjenkó og hvatti landmenn til að hætta að mótmæla stjórn hans. Vinir og bandamenn Pratasevitsj töldu hann hafa verið þvingaðan til að segja þetta.[2]
Pratasevitsj var dæmdur í átta ára fangelsi í maí árið 2023 en síðan náðaður síðar í sama mánuði.[3]
Remove ads
Heimild
- Fyrirmynd greinarinnar var „Roman Protasevich“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 24. maí. 2021.
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads