Roðaflæmingi

From Wikipedia, the free encyclopedia

Roðaflæmingi
Remove ads

Roðaflæmingi (fræðiheiti Phoenicopterus chilensis), eða síleflæmingi er stór fugl af flæmingjaætt. Hann verður 110-130 sm hár. Roðaflæmingi verpir í Suður-Ameríku frá Ecuador og PerúChile og Argentínu og austur til Brasilíu. Hann hefur verið fluttur til Þýskalands og Niðurlanda. Einnig finnast roðaflæmingjar í Utah og Kaliforníu. Roðaflæmingi verpir einu hvítu eggi á leirur eins og aðrir flamíngófuglar. Roðaflæmingi þekkist frá öðrum svipuðum tegundum á því að fætur eru gráleitir með bleikum liðum og hve stór hluti af goggnum er svartur. Ungfuglar eru gráir. Goggur roðaflæmingja er vel lagaður til að sía fæðu sem er aðallega þörungar og svif. Búsvæði fuglanna eru leirur við strönd, árósar, vötn og sölt sjávarlón.

  Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Staðreyndir strax Ástand stofns, Vísindaleg flokkun ...
Remove ads

Heimildir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads