Selja (tré)

From Wikipedia, the free encyclopedia

Selja (tré)
Remove ads

Selja (fræðiheiti: Salix caprea) er tré af víðiætt. Laufblöð hennar eru daufgræn og hærð á neðra borði. Hún verður oftast 8-10 metrar en getur mest orðið um 14 metrar á hæð. Selja kýs sér búsetu í vetrarsvölu meginlandsloftslagi og í mildu strandloftslagi, jafnt í Evrópu og norð-austur Asíu.

Staðreyndir strax Ástand stofns, Vísindaleg flokkun ...

Á Íslandi hefur seljan þrifist meðal annars í Múlakoti þar sem hún er orðin 12 metra há á 50 árum og nýtur sín vel inn til landsins sunnanlands. Annars þrífst hún vel um allt land og er vind og frostþolin. [1]

Trén þykja falleg garðtré, sérstaklega karltrén vegna fagurgulra reklanna. Ekki er hægt að fjölga selju með græðlingum eins og flestum víðitegundum.

  Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads