Lorentzkraftur

segulkraftur er kraftur, sem verkar á hlaðna ögn, sem hreyfist í rafsegulsviði From Wikipedia, the free encyclopedia

Lorentzkraftur
Remove ads

Lorentzkraftur eða segulkraftur er kraftur, sem verkar á hlaðna ögn, sem hreyfist í rafsegulsviði. Krafturinn er kenndur við Hendrik Antoon Lorentz.

Thumb
Ferlar agna með hleðslu q, sem ferðast með harðar v í segulsviði B (hornrétt á skjáinn), ráðast af formerki hleðslunnar. (Ef q = 0 hefur segulsviðið engin áhrif á ferilinn.)

Skilgreining

Lorentzkraftur F er oftast skilgreindur þannig:

þar sem

E er rafsviðsstyrkur (V/m)
B er segulsviðsstyrkur (T)
q er styrkur rafhleðslu (C)
v er hraðavigur agnarinnar (m/s)
× táknar krossfeldi.

Stundum er Lorentszkraftur aðeins talinn vera seinni liðurinn í jöfnunni hér að ofan, þ.e. q v × B, en fyrri liðurinn, q E, er þá s.k. rafsviðskraftur.

Hlaðin ögn, sem ferðast með jöfnum hraða í föstu segulsviði, fer eftir hringferli og gefur frá sér s.k. hringhraðlageislun.

Remove ads
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads