Skákbox
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Skákbox er einstaklingsíþrótt sem sameinar skák og hnefaleika (box).



Íþróttin var búin til af hollenska listamanninum Iepe Rubingh og kom fyrst fyrir almenningsjónir í september 2003 á listasýningu í Berlín.
Hver leikur er 11 lotur, 6 þeirra eru skák og 5 þeirra hnefaleikar. Hver skáklota tekur 4 mínútur, hver boxlota tekur 2 mínútur. Keppendur hafa 12 mínútur á skákklukkunni.
Sigur vinnst þegar eitt af eftirfarandi á við:
- andstæðingur er mát í skákinni
- andstæðingur hættir keppni í skák eða hnefaleikum
- andstæðingur er rotaður í hnefaleik
- dómari stöðvar leikinn í hnefaleik
- tími á skákklukku andstæðings rennur út
Ef skákinni lauk með jafntefli þá sigrar sá sem hlaut fleiri stig í hnefaleikalotunum. Ef enn er jafnt, þá er þeim sem lék svartan í skákinni dæmdur sigur.
Remove ads
Tenglar
- World Chess Boxing Organisation Geymt 3 nóvember 2005 í Wayback Machine
- Newsback Chessboxing Geymt 18 desember 2013 í Wayback Machine
Heimild
- „Wanna piece of this?“. Sótt 9. nóvember 2005.
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads