Skandinavía
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Skandinavía er fornt hugtak sem hefur hvorki einhlíta merkingu á íslensku né öðrum málum.

Greina má milli þriggja nota:
- Skandinavía sem landafræði- og jarðfræðilegt hugtak yfir löndin Noreg, Svíþjóð og þann hluta Finnlands sem er á Skandinavíuskaga.
- Skandinavía sem pólitískt og menningarlegt hugtak yfir þau samfélög sem hafa skandinavísk mál að móðurmáli, það er dönsku, norsku eða sænsku.
Remove ads
Orðsifjar
Heitið er dregið af latneska heitinu Scandināvia. Það deilir trúlega uppruna með heitinu Skánn. Bæði heitin Skandinavía og Skánn eru talin eiga upptök í frumgermönsku rótinni *Skaþinawjō (af *skaþô (skaði) og *awjō (ey)) sem síðar myndaði Scedenig í fornensku og Skáney í fornnorrænu,[1] sem er nú Skánn á íslensku. Heitið Skandinavía merkti þá hugsanlega skaðleg ey, sem hefur ef til vill átt við varasamar sandeyrar og sker undan ströndum Skáns.[2]
Elsta heimildin sem nefnir Skandinavíu er Náttúrusaga Pliníusar eldri (23–79 e.Kr.). Ýmsar tilvísanir finnast einnig í ritum eftir Pýþeas, Tacítus, Ptolemaios, Prokopios och Jordanes. Talið er að það heiti sem Pliníus notaði sé af vesturgermönskum uppruna, og hafi í fyrstu átt við Skán.[3]
Remove ads
Tengt efni
Tenglar
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Skandinavía.
Heimildir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads
