Skelkrabbar
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Skelkrabbar (fræðiheiti: Ostracoda) eru flokkur krabbadýra sem inniheldur samtals um 70.000 tegundir, þar af 13.000 núlifandi tegundir. Skelkrabbar eru smásæir, yfirleitt um 1 millimetri að lengd. Flestir skelkrabbar lifa botnlægir í sjó eða sem dýrasvif, aðrir í ferskvatni og nokkrir hópar skelkrabba lifa á þurrlendi. Skelkrabbar eru ýmist rándýr, jurtaætur, hræætur eða síarar.
Skelkrabbar eru á Íslandi, bæði í ferskvatni og sjó.
Remove ads
Tenglar
- Jón Már Halldórsson. „Hvað er vitað um skelkrabba?“ Vísindavefurinn, 22. október 2010. Sótt 25. janúar 2021.
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads