Sniglar

flokkur lindýra From Wikipedia, the free encyclopedia

Sniglar
Remove ads

Sniglar (fræðiheiti: Gastropoda) eru stærsti flokkur lindýra með 60-75.000 tegundir, þar á meðal land- og sæsnigla og ótal önnur sjávar- og vatnadýr. Sniglar eru venjulega með höfuð, sem á eru tveir fálmarar, og kviðlægan fót. Flestar tegundir eru með eina skel sem oftast er uppundin og myndar snúð eða kuðung. Sumar tegundir eru með nokkurs konar lok sem lokar skelinni eftir að dýrið dregur sig inn í hana.

Thumb
Skýringarmynd af líkama snigils
Staðreyndir strax Vísindaleg flokkun, Undirflokkar ...

Í hefðbundinni dýrafræði var sniglum áður skipt í þrjá undirflokka: fortálkna (Prosobranchia), bertálkna (Opistobranchia) og lungnasnigla (Pulmonata) en þessi flokkun er nú að breytast og flestir farnir að flokka bertálkna (Opistobranchia) sér.

Thumb
Skýringarmynd af skráptungu snigils

Sniglar eru með skráptungu, sem er tennt hornkennd tunga sem þeir nota til að skrapa fæðu og rífa hana, til dæmis lauf eða plöntur.

Remove ads

Heimild

„Hvað getið þið sagt mér um snigla?“. Vísindavefurinn.

  Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads