Snorralaug í Reykholti
heit laug í Reykholti í Borgarfirði From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Snorralaug í Reykholti eða Snorralaug er íslensk laug sem finna má í Reykholti. Snorralaug var ein af hinum 10 fyrstu friðlýstu fornminjunum á Íslandi. Hún er ein af þrettán laugum sem vitað er um að notaðar hafi verið til forna, og ein af fjórum sem enn eru nothæf.[1]
Saga
Talið er að laugin hafi verið hlaðin á 13. öld, og er hún kennd við Snorra Sturluson, en fyrstu heimildir um að það hafi verið laug í Reykholti eru frá dögum Snorra Sturlusonar (sem var uppi frá 1178-1241), en fyrirfinnast líka í Landnámabók og Sturlunga sögu. Tveir hverir finnast þar helstir, Skrifla og Dynkur. Var vatni veitt í Snorralaug úr Skriflu eftir um 120 m löngum neðanjarðarstokki og er baðlauga í Reykholti oft getið í gömlum heimildum. Snorralaug er með elstu mannvirkjum sem varðveist hafa hér á landi. Frá lauginn lágu jarðgöng til bæjarhúsa Snorra og hafa þau verið grafinn upp að hluta.
Hallbjörn son Odds frá Kiðjabergi Hallkelssonar, bróður Ketilbjarnar hins gamla, fékk Hallgerðar, dóttur Tungu-Odds. Þau voru með Oddi hinn fyrsta vetur; þar var Snæbjörn galti. Óástúðligt var með þeim hjónum.
Hallbjörn bjó för sína um vorið að fardögum; en er hann var að búnaði, fór Oddur frá húsi til laugar í Reykjaholt; þar voru sauðahús hans; vildi hann eigi vera við, er Hallbjörn færi, því að hann grunaði, hvort Hallgerður mundi fara vilja með honum. |
||
En talið er að laug hafi verið á Reykvöllum frá árinu 960 eða fyrr á grundvelli Landnámu en þar segir frá því að Tungu-Oddur, sonur Önundar breiðskeggs á Breiðabólstað fór „frá húsi til laugar í Reykjaholt; þar voru sauðahús hans;“[2]
Árið 2004 sýndi séra Geir Waage sóknarprestur í Reykholtskirkju norsku krónprinshjónunum frá Reykholti og sýndi þeim ásamt öðrum stöðum Snorralaug. [3]
Remove ads
Lýsing
Laugin er u.þ.b. 4 metrar í þvermál; og þar sem botn laugarinnar er ójafn er hún misdjúp, en dýptin er breytileg á milli 0.70 til 1 metra djúp. Þrep liggja niður í laugina, og er hlaðin úr tilhöggnu hveragrjót. Fyrir tilstilli fornleifauppgraftar hefur það verið leitt í ljós að tvær rennur veittu heitu vatni í laugina úr hverinum Skriflu sem hefur nú verið eyðilögð.
Á barmi aðrennslisins má sjá fangamerkið V.Th. 1858. á steini og er það fangamark Sr. Vernharðs Þorkelssonar sem lét gera við laugina það ár.
Lauginni er fyrst lýst í riti frá circa. 1724 eftir Páls Vídalíns („Um fornyrði Jónsbókar“).
Remove ads
Heimildir
Tengt efni
Tenglar
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads