Ölnureynir

From Wikipedia, the free encyclopedia

Ölnureynir
Remove ads

Ölnureynir; (Sorbus alnifolia, samheiti: Aria alnifolia), (kínv 水榆花楸 (framb.)shui yu hua qiu = vatns álms reynir), er tegund af reyni upprunnin frá austur Asíu.[2]

Staðreyndir strax Vísindaleg flokkun, Tvínefni ...
Remove ads

Lýsing

Ölnureynir er meðalstórt lauffellandi tré um 10 til 20m hátt með stofn sem verður að 30 sm að þvermáli og gráum berki og grönnum sprotum. Blöðin eru græn að ofan og gisið hvíthærð að neðan, 5 til 10 sm löng og 3 til 6 sm breið, yfirleitt óskift (sjá afbrigðin hér að neðan) breiðust neðst, með tenntum jaðri og hvössum enda. Haustliturinn er bleik rauðgulur til rauður. Blómin eru 10 - 18 mm í bvermál í hálfsveip 4 til 8 sm í þvermál síðla vors. Berið er kringlótt, 8 til 15 mm í þvermál, rautt.[2][3]

Það eru þrjú afbrigði:[2]

  • Sorbus alnifolia var. alnifolia. Blöðin óskift. Allt útbreiðslusvæði tegundarinnar.
  • Sorbus alnifolia var. angulata S.B.Liang. Blöðin lítið eitt sepótt; berið aflangt. Norðaustur Kína, Kórea.
    • Sorbus alnifolia var. lobulata Rehder. Blöðin lítið eitt sepótt; berin kringlótt. Shandong Province.

    Hann hefur stundum verið settur í eigin ættkvísl sem Micromeles alnifolia, en erfðafræðilegar vísbendingar setja hann nálægt Sorbus aria.[3]

    Remove ads

    Útbreiðsla og búsvæði

    Ölnureynir vex í Kóreu, Kína ( Gansu , Shandong , Henan , Hebei , Shaanxi , Zhejiang , Jiangxi , Sichuan , Liaoning , Jilin , Hubei , Heilongjiang , Anhui og Ussuri dal), og Japan (Hokkaido, Honshu, Shikoku og Kyushu), í fjallaskógum.

    Ræktun og nytjar

    Hann er stundum ræktaður sem skrauttré í norður Evrópu, aðallega vegan haustlitar. Ræktunarafbrigðið 'Skyline' hefur verið valið vegna upprétts vaxtarlags.[3]

    Myndir

    Tilvísanir

    Loading related searches...

    Wikiwand - on

    Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

    Remove ads