Stóru vötnin

nokkur stór stöðuvötn í og við Sigdalinn mikla í Afríku From Wikipedia, the free encyclopedia

Stóru vötnin
Remove ads

Stóru vötnin í Afríku eru nokkur stór stöðuvötn í og við Sigdalinn mikla og landsvæðið umhverfis. Meðal þeirra er þriðja stærsta stöðuvatn heims Viktoríuvatn. Vötnin eru:

Thumb
Gervihnattamynd af Stóru vötnunum í Afríku.

Sumir kalla einungis Viktoríuvatn, Albertsvatn og Edwardsvatn Stóru vötnin, þar sem þau eru þau einu sem tæmast út í Hvítu Níl. Tanganjikavatn og Kivuvatn eru hluti af vatnakerfi Kongófljóts.

Remove ads

Landsvæðið við stóru vötnin

Á svæðinu við stóru vötnin eru löndin Rúanda, Búrúndí og Úganda, auk hluta Lýðveldisins Kongó, Tansaníu og Kenýa. Svæðið er eitt af þeim þéttbýlustu í heimi, en áætlað er að 107 milljónir manna búi þar. Vegna eldvirkni er svæðið við stóru vötnin með bestu ræktarlöndum í Afríku og vegna hæðarinnar er loftslagið temprað, þótt svæðið sé við miðbaug.

  Þessi Afríkugrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Remove ads
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads