Próf Turings
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Próf Turings[1] eða Turing-próf er próf til að sannreyna hvort tölva getur sýnt greind við ákveðnar aðstæður. Hugmyndin kom fyrst fram í grein Alan Turing, „Computing machinery and intelligence“, sem kom út árið 1950 í tímaritinu Mind.[2] Prófið gengur út á að leika hermileik þar sem spyrill leggur spurningar fyrir mann og tölvu sem er forrituð þannig að hún þykist vera maður. Spyrillinn á síðan að álykta út frá svörum viðmælendanna hvor þeirra er tölva.[3] Turing vildi meina að ef tölvu tækist að herma svo vel eftir manni að spyrillinn léti blekkjast þá væri það nægjanleg sönnun þess að hún hugsaði.[4] Til þess að komast í gegnum prófið þyrfti tölvan að geta beitt tungumálinu, rökvísi, þekkingu og vera fær um nám.

Turing færir rök fyrir því í greininni að slíkt sé einungis spurning um verkfræði og forritun og að í náinni framtíð verði til tölvur sem geti staðist prófið. Margir hafa dregið þessa ályktun í efa. Fræg andsvör við þessu eru meðal annars þrautin kínverska herbergið sem John Searle setti fram 1980.[5]
Engin tölva hefur staðist próf Turings enn, svo vitað sé. Spjallhermar á borð við ELIZA hafa getað blekkt viðmælendur sína og látið þá halda að þeir væru að tala við manneskju í stuttan tíma, en á því er sá reginmunur að viðmælandinn vissi ekki af þeim möguleika að hann væri að tala við tölvu fremur en mann, en spyrillinn í prófi Turings veit að annar viðmælendanna er tölva.
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads