Víetnamska

From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

Víetnamska (tiếng Việt) er þjóðtunga og opinbert mál Víetnam. Á þeim tíma þegar að landið var enn frönsk nýlenda kallaðist tungumálið annamska. Ástæðan fyrir þeirri nafngift var sú, að kínverska nafnið yfir Norður Víetnam á nýlendutímanum var Annam. Víetnamska er móðurmál Víetnama, sem eru 86% af öllum íbúum Víetnam, og u.þ.b. 3.000.000 brottfluttra Víetnama, mest í Bandaríkjunum. Málið er hluti af ástróasísku tungumálafjölskyldunni og hefur langflesta málhafendur innan þeirrar fjölskyldu. Flokkun víetnömsku til ástróasísku málaættarinnar er þó ekki óumdeild og vilja aðrir telja hana til taí-mála, meðal annars vegna þess að víetnamska er tónamál einsog taí-málin og ólíkt mon-khmer málunum. Enn aðrir telja víetnömsku vera skildleikalaust stakmál án sannaðra tengsla við önnur mál. Mikið af orðaforðanum er úr kínversku og var málið upprunlega skrifað með kínversku letri. Víetnamska letrið sem notast er við í dag er afbrigði af latneska stafrófinu, með tveimur auka aðgreiningamerkjum fyrir tóna og ákveðna stafi.

 Linguistics stub.svg  Þessi málfræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Staðreyndir strax Víetnamska tiếng Việt, Opinber staða ...
Remove ads
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads