Sambesí

From Wikipedia, the free encyclopedia

Sambesí
Remove ads

Sambesí eða Sambesífljót er fjórða lengsta fljót í Afríku og það stærsta sem rennur í Indlandshaf. Vatnasvið þess er 1.329.965 km² að stærð, eilítið minna en helmingur vatnasviðs Nílar. Sambesí er 2.750 km langt. Það á upptök sín í Sambíu, rennur svo gegnum Angóla og síðan eftir landamærum Simbabve og Sambíu til Mósambík þar sem það rennur út í Indlandshaf.

Thumb
Viktoríufossar í Sambesífljóti.

Í Sambesí eru Viktoríufossar, eitt af stærstu vatnsföllum heims, en aðrir stórir fossar eru Chavuma-fossar við landamæri Sambíu og Angóla, og Ngonye-fossar í vesturhluta Sambíu. Allt fljótið er einungis brúað á fjórum stöðum: við Chinyingi, Viktoríufossa, Chirundu og Tete.

Tvær aðalvatnsaflsvirkjanir í fljótinu eru Kariba-stíflan og Cahora Bassa-stíflan. Lokið var við Kariba-stífluna 1959. Hún er 128 m há og 579 m breið. Lónið sem myndaðist er um 280 km langt og um 5400 km² að stærð. Stíflan er á landamærum Sambíu og Simbabve framleiðir um 16 hundruð MW. Cahora Bassa-stíflan er neðar í fljótinu í Mósambík og lokið var við að byggja hana 1974. Hún er 171 m á hæð og lónið um 2700 km² að stærð. Hún framleiðir um 2000 MW. Auk þessara vatnsaflsvirkjanna er tvær minni virkjanir í fljótinu. Umfang árósa Sambesífljótsins er um helmingur af því sem það var áður en stíflunar voru byggðar. Áður var meðallágmarksrennsli á sekúndu um 500 m³ og hámarksmeðalrennsli um 6000 m³. Þetta hefur leitt til þess viðkoma fiska, fugla og annarra dýra hefur raskast verulega. Í öðru lagi hefur graslendi fyrir kýr og villta grasbíta minnkað, og í þriðja lagi hafa landbúnaður og fiskveiðar beðið hnekki.[1][2]

Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads