Forsætisráðherra Íslands
From Wikipedia, the free encyclopedia
Forsætisráðherra Íslands stjórnar fundum ríkisstjórnar Íslands eins og segir í 17. grein stjórnarskrárinnar: „Fundunum stjórnar sá ráðherra, er forseti lýðveldisins hefur kvatt til forsætis, og nefnist hann forsætisráðherra“.
Forsætisráðherra er æðsti formaður forsætisráðuneytisins. Hann er einn þriggja handhafa forsetavalds í fjarveru forsetans. Ýmsar nefndir starfa undir forystu forsætisráðherrans.[1]
Sitjandi forsætisráðherra er Bjarni Benediktsson.[2]