La Malinche
From Wikipedia, the free encyclopedia
La Malinche, einnig kölluð Malintzin, Malinalli, Marina eða doña Marina (fædd í kringum 1500 og látin í kringum 1529) var amerísk frumbyggjakona af þjóðerni Nahúa. Hún starfaði sem túlkur og ráðgjafi Hernáns Cortés við upphaf landvinninga Spánverja gegn Astekaveldinu. Hún varð jafnframt ástkona Cortésar og eignaðist með honum son, Martín Cortés.[1]
Staðreyndir strax Fædd, Dáin ...
La Malinche | |
---|---|
Fædd | Í kringum 1500 |
Dáin | Fyrir 1529 (28–29 ára) |
Störf | Túlkur, ráðgjafi |
Þekkt fyrir | Hlutverk sitt í landvinningum Spánverja í Ameríku |
Maki | Juan Jaramillo |
Börn | Martín Cortés María |
Loka
Upphaflegt nafn hennar var Malinalli. Spánverjar gáfu henni nafnið Doña Marina þegar hún tók kaþólska skírn. Nafn hennar útfærðist sem Malintzin á nahúatl, með asteska viðskeytinu -tzin. Þessi orðmynd þýddist á spænsku sem La Malinche.[2]