Phnom Penh
Höfuðborg Kambódíu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Phnom Penh (á khmer ភ្នំពេញ, einnig umskrifað sem Phnum Pénh) er höfuðborg Kambódíu og einnig langstærsta borg landsins. Borgin hefur verið aðsetur stjórnsýslu og miðstöð efnahagslífs allt frá því að Frakkar lögðu landið undir sig í lok nítjándu aldar.
Íbúatala Phnom Penh er um 1.501.725 samkvæmt manntali 2012. Borgin er byggð þar sem Mekong-fljótið mætir Tonle Sap-fljótinu og þar sem Bassac-fljótið skilur við meginkvísl Mekong. Í borginni er alþjóðlegur flugvöllur og fremur stór höfn. Mekong-fljótið er skipgengt að stórum hluta og geta allt að 8000 tonna skip siglt til Phnom Penh á rigningartímanum og allt að 5000 tonna skip á þurrkatímanum.[1]