Sjálfsmorð
From Wikipedia, the free encyclopedia
Sjálfsmorð (eða sjálfsvíg) er sá verknaður að ráða sjálfum sér bana. Áhættuþættir fyrir sjálfsvígi eru sjúkdómar á borð við þunglyndi, geðhvarfasýki, geðklofi, og persónuleikaröskun, ásamt lyfjamisnotkun og áfengissýki.[1][2][3] Sum sjálfsvíg má rekja til sálræns álags.[4][5] Forvarnir við sjálfsvígum ganga helst út á að takmarka aðgengi að skotvopnum og lyfjum, og að veita meðferð við geðkvillum og fíkn.[2][6] Ekki hefur verið sýnt fram á að hjálparsímar beri árangur.[7][8]
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. |
Um 0,5–1,4% fólks deyr vegna sjálfsmorðs.[9][10] Nokkuð algengara er að karlmenn falli fyrir eigin hendi, í hinum vestræna heimi eru þeir 3,5 sinnum líklegri til að fremja sjálfsmorð en konur.[11]