From Wikipedia, the free encyclopedia
Þvag eða piss er vökvi sem líkaminn notar til að skilja út aukaafurðir efnaskipta líkamans. Þvagið er myndað í nýrunum. Það fer í gegnum þvagpípurnar yfir í þvagblöðruna, og þaðan í gegnum þvagrásina út úr líkamanum.
Yfirleitt er þvag gult á lit en ýmislegt getur haft áhrif á litinn, til dæmis hversu mikið maður drekkur og borðar. Sumar matvörur geta líka haft áhrif á litinn, til dæmis ef mikils af rauðrófu er neytt þá getur þvagið orðið rautt. Ef blóð er í þvaginu getur það bent á sjúkdóma eins og nýrnasteina eða nýrnabólgu.[1]
Með þvagi skilar líkaminn út vatnsleysanlegum efnum, þá sér í lagi efnum sem innihalda nitur eins og þvagefni, þvagsýru, og kreatínín.
Þvag samanstendur af vatni (yfir 95 %), þvagefni 9,3 g/L, klóríði 1,87 g/L, natríni 1,17 g/L, kalíni 0,750 g/L, og öðrum uppleystum jónum, ólífrænum og lífrænum efnasamböndum.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.