Alþingiskosningar 2016
From Wikipedia, the free encyclopedia
Alþingiskosningar voru haldnar á Íslandi laugardaginn 29. október 2016, í 22. skiptið sem þær hafa verið haldnar frá lýðveldisstofnun. Kosningar voru síðast haldnar vorið 2013 og voru því ekki á dagskrá fyrr en í síðasta lagi 22. apríl 2017. Kjörsókn var 79,2% sem er minnsta kjörsókn í Alþingiskosningum á lýðveldistíma.
Staðreyndir strax Kjörsókn, Flokkur ...
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
63 sæti á Alþingi 32 sæti þarf fyrir meirihluta | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Kjörsókn | 195.203 (79,2% 2,2%) | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Hér eru skráðir þeir flokkar sem náðu manni á þing. Heildarúrslit má sjá neðar.
|
Loka
Átök og stjórnarkreppa vegna leka á gögnum í skattaskjólum sem kölluð hafa verið panamaskjölin sem vörpuðu ljósi á eigur íslenskra ráðamanna í slíkum skjólum urðu til þess að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði af sér sem forsætisráðherra og þingkosningum var flýtt til haustsins 2016.[1] 22 þingmenn hættu á þingi eða urðu undir í prófkjörum. [2]