From Wikipedia, the free encyclopedia
Panamaskjölin eru gögn sem lekið var í apríl 2016. Þau eru talin vera einn stærsti gagnaleki sögunnar; um 11 milljón talsins. Þeim var lekið frá lögfræðistofunni Mossack Fonseca sem staðsett er í Panama. Mossack Fonseca er eitt viðamesta fyrirtækið í heimi aflandseyja, leynireikninga og skattaskjóla. Í skjölunum koma við sögu 72 núverandi og fyrrverandi þjóðarleiðtogar, en skjölin sýna m.a. hvernig Mossack Fonseca aðstoðaði viðskiptavini sína við peningaþvott og skattaundanskot.[1]
Meðal einstaklinga sem tengjast skjölunum eru: Vladimir Putin forseti Rússlands, Muammar Gaddafi forseti Líbíu, Lionel Messi knattspyrnumaður, Michel Platini fyrrum forseti UEFA, Salman bin Abdulaziz Al Saud konungur Sádí-Arabíu, Mauricio Macri forseti Argentínu, Petró Pórósjenkó forseti Úkraínu og Nawaz Sharif forsætisráðherra Pakistans. Ýmsir fyrrum þjóðarleiðtogar eru einnig taldir upp, s.s. Sigmund Davíð Gunnlaugsson auk fleiri Íslendinga.
Meira en 11 milljónir skjala, tölvupósta og stofnskjala aflandsfélaga er að finna í gögnunum og meira en 214 þúsund aflandsfyrirtæki í 200 löndum og skattaskjólum víða um heim eru viðriðin.
Kastljós var með sérþátt um málið þann 3. apríl 2016 þar sem tekið var viðtal við Sigmund Davíð Gunnlaugsson og farið ítarlega í málefni skjalanna sem viðkom Íslandi. Þátturinn var unninn í samstarfi við Reykjavík Media, Alþjóðasamtök rannsóknarblaðamanna (ICIJ) og þýska dagblaðið Süddeutsche Zeitung(SZ). Í gögnum Mossack Fonseca hafa fundist um 800 aflandsfélög sem tengjast 600 Íslendingum. Reykjavík Media hefur við skoðun á gögnunum meðal annars fundið lánasamninga upp á milljarða króna á milli aflandsfélaga þekktra íslenskra viðskiptamanna.
Blaðamaður SZ tjáði sig um málið: „Okkur var brugðið að sjá hversu mörg aflandsfélög sem tengdust Íslandi var að finna í gögnunum því að Ísland er nú ekki stórt land en við fundum hundruð aflandsfyrirtækja sem voru í eigu Íslendinga eða höfðu sterk tengsl við landið.“ [2]
Meðal þeirra stjórnmálamanna sem tengjast skjölunum eru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Bjarni Benediktsson, Ólöf Nordal, Júlíus Vífill Ingvarsson og Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir
Jón Ásgeir Jóhannesson og eiginkona hans, Ingibjörg Pálmadóttir, geymdu milljarða króna í skattaskjóli í Panama. Í skjölunum er að finna mikið magn upplýsinga um viðskipti félags þeirra Guru Invest S.A. Jón Ásgeir hefur ítrekað sagt að hann eigi engar eignir í skattaskjólum.[3]
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, greindi frá því í viðtali á CNN sjónvarpsstöðinni að hann og hans fjölskylda hefði ekki tengsl við aflandsfélög. Greint var frá því í fréttum í seinni hluta apríl að fyrirtæki fjölskyldu Dorritar Moussaieff í Bretlandi, Moussaieff Jewellers, hefði tengst Tortóla-félaginu Lasca Finance.[4]
Í nóvember 2016 kom fram að skattrannsóknarstjóri hefði rannsakað og kært 57 íslenska sjómenn til héraðssaksóknara fyrir skattalagabrot tengja skjölunum. [5]
Í kjölfar lekans urðu mótmæli 4. apríl við Alþingishúsið þar sem talið er að 22 þúsund manns hafi mætt.[6] Mótmæli urðu næstu dagana en í minna mæli. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fór á fund forseta og óskaði eftir þingrofi. Forseti neitaði þeirri beiðni. Svo fór að lokum að Sigmundur vék sem forsætisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson tók við embættinu. Frekari uppstokkun ríkisstjórnarinnar varð á þá leið að Gunnar Bragi Sveinsson tók við embætti landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra. Lilja Dögg Alfreðsdóttir tók við embætti utanríkisráðherra. Stjórnarandstaðan lagði fram vantrauststillögu á nýju stjórnina 8. apríl. Sú tillaga var felld.[7] Alþingiskosningum var flýtt til haustsins 2016.
Aðrir sem hafa sagt af sér:
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.