Alþjóðabankinn

From Wikipedia, the free encyclopedia

Alþjóðabankinn

Alþjóðabankinn er fjármálastofnun sem sér ríkjum fyrir fjármagni og ráðgjöf í þeim tilgangi að styðja við þróun og útrýma fátækt. Bankinn varð til 27. september 1945 í kjölfar alþjóðlegrar fullgildingar Bretton Woods-samninganna.

Thumb
Mótmæli gegn Alþjóðabankanum í Djakarta í Indónesíu.

Meginstarfsemi bankans er í þróunarlöndunum á sviðum mannauðsþróunar (t.d. menntun og heilsa), þróun í landbúnaði, umhverfisvernd og grunnvirki (vegir, rafkerfi o.s.frv.) auk stjórnkerfisþróunar. Það veitir aðildarríkjum lán á hagstæðum vöxtum og styrkir auk þess verkefni í fátækum ríkjum. Þessi lán og styrkir eru gjarnan skilyrt af kröfu um stefnubreytingu í efnahagslífi eða stjórnkerfi viðkomandi lánþega. Þetta hefur leitt til gagnrýni á það að Alþjóðabankinn sé tæki vestrænna ríkja til að þrýsta á þróunarlönd að taka upp efnahagskerfi (markaðshagkerfi) sem henti þróuðu ríkjunum betur.

  Þessi hagfræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.