Benín
From Wikipedia, the free encyclopedia
Benín er land í Vestur-Afríku og var áður kallað „Dahómey“ eftir konungsríkinu Dahómey sem Frakkar lögðu undir sig 1892-1894. Landið á stutta strandlengju við Benínflóa, sem áður var þekktur viðkomustaður þrælasala, og dregur nafn sitt af honum. Landið á landamæri að Tógó í vestri, Nígeríu í austri og Búrkína Fasó og Níger í norðri. Höfuðborgin er Porto-Novo en aðsetur stjórnarinnar er í Cotonou, sem jafnframt er stærsta borgin og efnahagsleg höfuðborg landsins. Benín er hitabeltisland sem flytur út bómull og pálmaolíu. Sjálfsþurftarbúskapur er útbreiddur.[1]
Lýðveldið Benín | |
République du Bénin | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Fraternité, Justice, Travail (franska) Bræðralag, réttlæti, vinna | |
Þjóðsöngur: L'Aube Nouvelle | |
Höfuðborg | Porto-Novo |
Opinbert tungumál | Franska |
Stjórnarfar | Forsetaræði |
Forseti | Patrice Talon |
Sjálfstæði | frá Frakklandi |
• Heimastjórn | 1958 |
• Sjálfstæði | 1. ágúst 1960 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
100. sæti 114.763 km² 0,4 |
Mannfjöldi • Samtals (2019) • Þéttleiki byggðar |
78. sæti 11.733.059 94,8/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2019 |
• Samtals | 29,918 millj. dala (137. sæti) |
• Á mann | 2.552 dalir (163. sæti) |
VÞL (2019) | 0.545 (158. sæti) |
Gjaldmiðill | Vesturafrískur CFA-franki |
Tímabelti | UTC+1 |
Þjóðarlén | .bj |
Landsnúmer | +229 |
Lítið er vitað um forsögu Benín, en helstu ríkin á þessu svæði frá 17. til 19. aldar voru Konungsríkið Dahómey, borgríkið Porto-Novo og stórt svæði í norðri sem skiptist milli nokkurra ólíkra þjóða. Strönd landsins var þekkt sem „þrælaströndin“ vegna mikilla nauðungarflutninga þræla þaðan til Nýja heimsins frá 17. öld þegar þríhyrningsverslunin á Atlantshafi hófst. Eftir að Frakkar lögðu landið undir sig nefndu þeir það Franska Dahómey. Landið fékk sjálfstæði frá Frakklandi 1960. Síðan þá hefur stjórnmálasaga landsins einkennst af valdaránum og herforingjastjórnum. „Alþýðulýðveldið Benín“ var heiti landsins frá 1975 til 1990, þegar því var stjórnað í marx-lenínískum anda. Árið 1990 tók við fjölflokkakerfi og síðan þá hefur opinbert heiti landsins verið „Lýðveldið Benín“.
Franska er opinbert mál landsins, en þar eru töluð mörg frumbyggjamál, eins og jórúba, fon, bariba og dendi. Stærsti trúarhópur landsins eru rómversk-kaþólskir, en þar á eftir koma múslimar, vodun og mótmælendur. Benín á aðild að Sameinuðu þjóðunum, Afríkusambandinu, Efnahagsbandalagi Vestur-Afríkuríkja, Samtökum um íslamska samvinnu, Friðar- og samstarfssvæði við Suður-Atlantshaf, La Francophonie, Samtökum ríkja í Sahel og Sahara, Samtökum olíuframleiðsluríkja í Afríku, Nígerfljótsráðinu.[2]