![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a9/Ks_1996_dole.jpg/640px-Ks_1996_dole.jpg&w=640&q=50)
Bob Dole
Bandarískur stjórnmálamaður / From Wikipedia, the free encyclopedia
Robert Joseph Dole (22. júlí 1923 – 5. desember 2021[1]) var bandarískur stjórnmálamaður og lögmaður sem sat á öldungadeild Bandaríkjaþings fyrir Kansas frá 1969 til 1996. Hann var leiðtogi þingflokks Repúblikanaflokksins á öldungadeildinni síðustu ellefu ár sín á þingi og var leiðtogi þingmeirihlutans í alls þrjú ár. Áður hafði hann setið á fulltrúadeild Bandaríkjaþings frá 1961 til 1969. Dole var frambjóðandi Repúblikana í forsetakosningunum 1996 en tapaði þar fyrir Bill Clinton og Al Gore. Áður hafði Dole verið varaforsetaefni í forsetaframboði Geralds Ford í kosningunum 1976, en þar töpuðu þeir Ford gegn Jimmy Carter og Walter Mondale. Dole er eini frambjóðandi annars stóru stjórnmálaflokkanna í Bandaríkjunum sem hefur tapað kjöri bæði í embætti forseta og varaforseta.
Bob Dole | |
---|---|
![]() Dole á níunda áratugnum. | |
Öldungadeildarþingmaður fyrir Kansas | |
Í embætti 3. janúar 1969 – 11. júní 1996 | |
Forveri | Frank Carlson |
Eftirmaður | Sheila Frahm |
Fulltrúadeildarþingmaður fyrir Kansas | |
Í embætti 3. janúar 1961 – 3. janúar 1969 | |
Forveri | Wint Smith |
Eftirmaður | Keith Sebelius |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 22. júlí 1923 Russell, Kansas, Bandaríkjunum |
Látinn | 5. desember 2021 (98 ára) Russell, Kansas, Bandaríkjunum |
Þjóðerni | Bandarískur |
Stjórnmálaflokkur | Repúblikanaflokkurinn |
Maki | Phyllis Holden (g. 1948; sk. 1972) Elizabeth Hanford (g. 1975) |
Börn | 1 |
Háskóli | Washburn-háskóli |
Undirskrift | ![]() |