From Wikipedia, the free encyclopedia
Bob Marley (6. febrúar 1945 – 11. maí 1981) var jamaískur söngvari og tónlistarmaður. Hann var einn af frumkvöðlum reggítónlistar. Marley samdi mörg vinsæl lög þar á meðal „No Woman No Cry“, „I Shot The Sheriff“, „One Love“ og „Jamming“.
Faðir hans, Norval Sinclair Marley var ættaður frá Bretlandi en móðir hans, Cedella Brooker var af afrískum uppruna. Faðir hans var sextugur þegar að hann giftist móður hans en hún var aðeins 18 ára. Eiginkona Bobs var Rita Marley og hann var ellefu barna faðir (talið er að hann sé líffræðilegur faðir tveggja barna til viðbótar en það hefur ekki verið sannað). Árið 1976 var hann skotinn á heimili sínu við Hope Road vegna pólitísks ágreinings í Kingston á Jamaíka en varð ekki meint af.
Marley var þekktur fyrir Rastafari trúarskoðanir sínar. Rastafari er trúfélag sem var stofnað í kringum 1930 á Jamaíka. Meðlimir í Rastafari hreyfingunni tilbiðja Haile Selassie I, fyrrum Eþíópíukeisara en hann var af þeim talin vera Kristur endurfæddur.
Í júlí 1977 greindist hann með krabbamein undir tánögl. Öfugt við sögusagnir þá voru þessi veikindi ekki vegna sárs sem hann hlaut í fótboltaleik fyrr á árinu heldur hafði krabbameinið verið til staðar mun lengur. Gegn vilja lækna neitaði hann að láta fjarlægja tána, berandi við trúarskoðun sinni.
Hann hélt þó áfram tónleikaferðalagi sínu en varð að hætt sökum veikinda. A flugi heim til Jamaíka frá Þýskalandi versnaði ástand hans mjög. Eftir lendingu í Flórída var hann fluttur á sjúkrahús til skoðunar. Hann dó á Cedars of Lebanon Hospital (núna University of Miami Hospital), að morgni 11. maí 1981, 36 ára að aldri. Dánarorsök voru þau að krabbameinið hafði bæði borist í heila og lungu.
Síðustu orð hans á banabeðinu voru til sonar hanns, Ziggy, „Peningar geta ekki keypt líf“ (e.Money can't buy life)[1] Hann var grafinn á kostnað ríkisins, enda litið á hann sem þjóðarhetju á Jamaíka, þann 21. maí 1981. Jarðarförinn var blanda af Eþíópískum kirkju siðum[2][3] og siðum Rastafara. Hann var grafinn í kapellu nærri fæðingarstað sínum með rauðan Gibson Les Paul (sumir segja þó að það hafi verið Fender Stratocaster).[4]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.