Bíll
vélknúið ökutæki til fólks- eða vöruflutninga / From Wikipedia, the free encyclopedia
Bifreið eða bíll er vélknúinn fararskjóti. Langoftast er hann fjögurra hjóla vagn sem knúinn er með fjórgengisbrunahreyfli. Þar sem brunahreyflar tóku við af hestvögnum, þá er mælieiningin á kraft þeirra mæld í svonefndum hestöflum. Þó þekkist einnig að kraftur bíla sé mældur í vöttum.
Upphaf fjöldaframleiðslu bifreiða er rakið til framleiðslu hinna þýsku Benz Patent-Motorwagen árið 1885. Hófst þá mikil samkeppni um framþróun bíla. Árið 1900 nam heildarfjöldi bíla í heiminum minna en 500, en hálfri öld síðar voru þeir nær 81 milljón.[1] Fram til 1908 var tíðni bílferða og hestaferða jafnhá, en með tilkomu Ford Motel T fjölgaði bílum ört.
Áætlað var 2010 að fjöldi bíla í heiminum væru fleiri en einn milljarður, en þeir voru 500 milljónir 1986.[2] Mikil aukning er í fjölda bíla og þá sérstaklega í Kína og Indlandi. Algengasta gerð bifreiða er með fjórgengisbensínhreyfli. Ennfremur hefur færst í aukana að bílar séu knúnir rafhreyflum.
Fjöldi sæta í bílum er misjafn en flestir bílar eru fimm sæta. Skiptast í framsæti og aftursæti.