Búddismi
From Wikipedia, the free encyclopedia
Búddismi er trúarstefna og heimspekikenning sem er byggð á kenningum Siddhārtha Gátama (á sanskrít, á palí heitir hann Siddhattha Gotama), sem lifði fyrir 2500 árum síðan. Siddharta Gátama hlaut síðar tignarheitið Búdda, sem þýðir „hinn upplýsti“. Búddisminn náði mikilli útbreiðslu á Indlandi og þaðan til Mið-Asíu, Srí Lanka og Suðaustur-Asíu og einnig til Austur-Asíu, Kína, Mongólíu, Kóreu og Japan. Á síðari áratugum hefur búddismi fengið talsvert fylgi meðal vesturlandabúa, meðal annars á Íslandi.
Óvíst er hversu marga má telja sem búddista í heiminum, í mörgum þeirra landa þar sem búddismi hefur mikil áhrif, til dæmis Kína og Japan, telur fólk sig oft til margra trúfélaga samtímis. En sennilega má álykta að fjöldi búddista sé á bilinu 200 til 500 milljónir. Oft er talað um að um 380 milljónir fylgi kenningum Búdda og gerir það búddisma að fjórðu stærstu trúarbrögðum heimsins.[1] Búddistar á austurlöndum hafa ekki notað þetta nafn heldur kallað sig fylgjendur dhamma/dharma. Þeir tala oft um kjarna trúarinnar sem gimsteinana þrjá: Búdda, dhamma/dharma og sangha, það er lærifaðirinn, kenningin og söfnuðurinn.
Til eru mjög mismunandi stefnur innan búddismans sem eru mótaðar af ýmsum siðum og venjum. Helstu greinar búddismans eru theravada (kenning öldunganna) og mahāyāna (stóri vagninn). Stundum er vajrayāna-greinin talin sem sjálfstæð þriðja greinin en oftast er hún talin undirgrein mahayana.