Elísabet 2. Bretadrottning
Drottning Bretlands frá 1952 til 2022 / From Wikipedia, the free encyclopedia
Elísabet 2. (fullt nafn: Elizabeth Alexandra Mary, 21. apríl 1926 – 8. september 2022) var drottning og þjóðhöfðingi Antígva og Barbúda, Ástralíu, Bahamaeyja, Belís, Kanada, Grenada, Jamaíku, Nýja Sjálands, Papúu Nýju Gíneu, Sankti Kristófer og Nevis, Sankti Lúsíu, Sankti Vinsent og Grenadíneyja, Salómonseyja, Túvalú, og Bretlands.
| ||||
Elísabet 2. | ||||
Ríkisár | 6. febrúar 1952 – 8. september 2022 | |||
Skírnarnafn | Elizabeth Alexandra Mary | |||
Fædd | 21. apríl 1926(1926-04-21) | |||
17 Bruton Street, Mayfair, London, Bretlandi | ||||
Dáin | 8. september 2022 (96 ára) | |||
Balmoral-kastala, Skotlandi, Bretlandi | ||||
Gröf | Minningarkapella Georgs 6. konungs, Kapellu Heilags Georgs, Windsor-kastala | |||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Georg 6. Bretlandskonungur | |||
Móðir | Elizabeth Bowes-Lyon | |||
Eiginmaður | Filippus prins, hertogi af Edinborg | |||
Börn | Karl 3., Bretakonungur Anna, hin konunglega prinsessa Andrés, hertogi af Jórvík Játvarður jarl af Wessex |
Þar að auki var hún höfuð samveldisins, æðsti yfirmaður ensku biskupakirkjunnar og breska heraflans og lávarður Manar. Þessum embættum gegndi hún síðan faðir hennar Georg 6. lést árið 1952 til dauðadags árið 2022. Hún var þjóðhöfðingi um 125 milljón manna og þaulsætnasti þjóðhöfðingi í sögu Bretlands.
Elísabet var eldri dóttir Alberts hertoga af York og konu hans, Elísabet Bowes-Lyon. Þegar hún fæddist var ekkert sem benti til þess að hún yrði framtíðarþjóðhöfðingi Bretlands. Ríkisarfinn var eldri bróðir föður hennar, Játvarður prins af Wales, og allir bjuggust við að hann gengi í hjónaband og eignaðist börn. Hann varð að vísu konungur 1936 en sagði af sér seinna sama ár og þá varð faðir Elísabetar konungur, þvert gegn vilja sínum, og tók sér nafnið Georg 6. Elísabet stóð þá næst til ríkiserfða þar sem hún átti engan bróður. Hún fékk þó ekki titilinn prinsessa af Wales.
Eiginmaður hennar var Filippus prins, hertogi af Edinborg, og gengu þau í hjónaband 1947. Þau eru bæði afkomendur Kristjáns 9. Danakonungs og Viktoríu Bretadrottningar. Saman eiga þau fjögur börn en þau eru í aldursröð: Karl 3. Bretakonungur, Anna prinsessa, Andrés hertogi af York og Játvarður jarl af Wessex.