![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/31/Emmerson_Mnangagwa_Official_Portrait.jpg/640px-Emmerson_Mnangagwa_Official_Portrait.jpg&w=640&q=50)
Emmerson Mnangagwa
3. og núverandi forseti Simbabve / From Wikipedia, the free encyclopedia
Emmerson Dambudzo Mnangagwa (f. 15. september 1942) er núverandi forseti Simbabve. Hann tók við völdum þann 24. nóvember 2017 eftir að simbabveski herinn steypti Robert Mugabe af stóli. Áður hafði hann verið varaforseti í ríkisstjórn Mugabe en Mugabe rak hann úr því embætti stuttu áður en herinn steypti honum af stóli. Mnangagwa er meðlimur í Hinu afríska þjóðarbandalagi Simbabve (Zimbabwe African National Union eða ZANU) og hafði verið bandamaður Mugabe í mörg ár.
Emmerson Mnangagwa | |
---|---|
![]() | |
Forseti Simbabve | |
Núverandi | |
Tók við embætti 24. nóvember 2017 | |
Varaforseti | Constantino Chiwenga |
Forveri | Robert Mugabe |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 15. september 1942 (1942-09-15) (81 árs) Zvishavane, Suður-Ródesíu |
Stjórnmálaflokkur | ZANU |
Maki | Jayne Matarise (g. 1973; d. 2002) Auxillia Mnangagwa |
Börn | 9 |
Háskóli | Háskólinn í Sambíu, Háskólinn í London |
Starf | Lögfræðingur, byltingarmaður, stjórnmálamaður |
Mnangagwa gengur undir viðurnefninu „krókódíllinn“ (Ngwena eða Garwe á Shona-máli). Þetta var nafnið á skæruliðahópnum sem hann leiddi í sjálfstæðisbaráttu landsins en nafnið hefur loðið við hann vegna hörku hans og stjórnmálakænsku. Flokkurinn sem styður hann innan ZANU er kallaður Lacoste, í höfuðið á franskri fatakeðju sem hefur krókódíl fyrir einkennismerki.[1]