![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/68/Desertification_map.png/640px-Desertification_map.png&w=640&q=50)
Eyðimerkurmyndun
From Wikipedia, the free encyclopedia
Eyðimerkurmyndun er tegund landeyðingar þar sem þurrlendi breytist í eyðimörk og missir vatnsuppsprettur, gróðurþekju og dýralíf. Eyðimerkurmyndun getur stafað af ýmsum þáttum eins og loftslagsbreytingum og ofnýtingu af hálfu manna. Skógaeyðing, jarðvegseyðing, uppblástur og þurrkar eiga þátt í eyðimerkurmyndun. Eyðimerkurmyndun getur verið náttúruleg og stafað af breytingum sem verða á umhverfisaðstæðum jarðar. Eyðimerkurmyndun er alvarlegt umhverfisvandamál víða um heim. Eyðimerkurmyndun er hvað mest á Sahelsvæðinu, í Góbíeyðimörkinni, Mongolíu og einnig á afmörkuðum svæðum í Suður-Ameríku. [1] Sameinuðu þjóðirnar hafa beitt sér í baráttunni gegn eyðimerkurmyndu með samningi sem Ísland hefur undirritað[2][3]
- „Desertification“, Wikipedia (enska), 8. nóvember 2023, sótt 20. nóvember 2023
- „Alþjóðlegir umhverfissamningar - Aðgerðir gegn eyðimerkurmyndun“. www.stjornarradid.is. Sótt 20. nóvember 2023.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/68/Desertification_map.png/640px-Desertification_map.png)