Frederik Willem de Klerk
suður-afrískur stjórnmálamaður / From Wikipedia, the free encyclopedia
Frederik Willem de Klerk (18. mars 1936 – 11. nóvember 2021[1]), oft þekktur sem F.W. de Klerk, var sjöundi og jafnframt seinasti forsetinn á tímum aðskilnaðarstefnunnar í Suður-Afríku. Hann gengdi embætti frá september 1989 til maí 1994. De Klerk var einnig leiðtogi Þjóðarflokks Suður-Afríku (sem varð svo seinna Nýi þjóðarflokkur Suður-Afríku) frá febrúar 1989 til september 1997.
Frederik Willem de Klerk | |
---|---|
Ríkisforseti Suður-Afríku | |
Í embætti 15. ágúst 1989 – 10. maí 1994 | |
Forveri | P. W. Botha |
Eftirmaður | Nelson Mandela |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 18. mars 1936 Jóhannesarborg, Suður-Afríku |
Látinn | 11. nóvember 2021 (85 ára) Höfðaborg, Suður-Afríku |
Stjórnmálaflokkur | Þjóðernissinnaflokkur Suður-Afríku Nýi þjóðernissinnaflokkur Suður-Afríku |
Starf | Fyrrverandi forseti Suður-Afríku, stjórnmálamaður og lögfræðingur |
Þekktur fyrir | Baráttu gegn aðskilnaðarstefnunni |
Undirskrift |
De Klerk var þekktastur fyrir að hafa stuðlað að endalokum aðskilnaðarstefnunnar og fyrir framtak sitt við umbreytingu Suður-Afríku yfir í fjöl-kynþátta samfélag þar sem allir þegnar ríkissins, svartir sem hvítir, hafa sömu réttindi og tækifæri. Fyrir þessi verk hlaut hann Friðarverðlaun Félix Houphouët-Boigny árið 1991. Einnig deildi hann tveimur verðlaunum með Nelson Mandela, Verðlaun prinsessunnar af Astúríu árið 1992 og Friðarverðlaun Nóbels árið 1993.
De Klerk var einn af varaforsetum Suður-Afríku í stjórnartíð Nelsons Mandela og var hann orðinn síðasti hvíti maðurinn til að gegna því embætti þegar hann lét af störfum 1996. De Klerk dró sig alfarið úr stjórnmálum árið 1997.