Germönsk tungumál
From Wikipedia, the free encyclopedia
Germönsk mál er stærsti undirflokkur indóevrópskra mála. Meðal annarra tilheyra enska, þýska, hollenska og norrænu málin þessum flokki.
Germönsk tungumál | ||
---|---|---|
Ætt | Indóevrópskt | |
Frummál | Frumgermanska | |
Undirflokkar | Norðurgermönsk tungumál Vesturgermönsk tungumál Austurgermönsk tungumál (útdauð) | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-2 | gem | |
ISO 639-5 | gem | |
Lönd þar sem germanskt mál er opinbert en ekki aðalmál |
Engar skriflegar heimildir um frumgermönsku eru til og þess vegna er málið óþekkt í dag. En með samanburði á ýmsum germönskum málum hefur málvísindamönnum tekist að endurskapa frumgermönsku að miklu leyti. Úr þessu frummáli tóku þau mál sem urðu að germönskum málum nútímans að þróast um sama leyti og germanskar þjóðir fóru að dreifast um Evrópu í kringum upphaf kristilegs tímatals.
Germönskum málum er oft skipt í norðurgermönsk eða norræn mál, austurgermönsk og vesturgermönsk. Öll austurgermönsk mál eru nú útdauð. Heimildir um þau er aðallega að finna í gotneskum biblíum; þekktust er svokölluð Silfurbiblía sem var skrifuð um árið 500 auk fjölda rúnasteina.
Elstu textar á germönsku máli (takmarkaðir þó) eru rúnaristur frá 3. öld e.Kr. sem sýna einungis mállýskumun. Elsta verulega heimildin er gotneska biblían.
Germönsku tungumálin eru venjulega rakin til hirðingja sem höfðust við milli Svartahafs og Kaspíahafs, en réðust inn til Evrópu og tóku yfir landsvæði sem var seinna kallað „Þýskaland“ af keltneskumælandi fólki.