Greta Thunberg
Sænskur loftslagsaðgerðasinni / From Wikipedia, the free encyclopedia
Greta Tintin Eleonora Ernman Thunberg (f. 3. janúar 2003) er sænskur aðgerðasinni sem hefur verið áberandi í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Hún vakti athygli árið 2018 þegar hún settist fyrir framan ríkisþinghúsið í Stokkhólmi með skilti sem á stóð „Skólaverkfall fyrir loftslagið“. Frumkvæði hennar er fyrirmyndin að sams konar skólaverkföllum í þágu loftslagsaðgerða um allan heim sem fara fram undir nafninu Föstudagar fyrir framtíðina.
Staðreyndir strax Fædd, Þjóðerni ...
Greta Thunberg | |
---|---|
Fædd | 3. janúar 2003 (2003-01-03) (21 árs) |
Þjóðerni | Sænsk |
Störf | Nemandi, aðgerðasinni |
Þekkt fyrir | Skólaverkföll gegn loftslagsbreytingum |
Foreldrar | Malena Ernman & Svante Thunberg |
Undirskrift | |
Loka