Hvítblæði
blóðkrabbamein sem myndast í beinmerg / From Wikipedia, the free encyclopedia
Hvítblæði er flokkur krabbameina sem eiga vanalega upptök sín í beinmergnum. Í blóðinu finnst svo mikið af óeðlilegum og vanþroskuðum hvítum blóðfrumum.[1] Einkenni eru vanalega blæðing, marblettir, þreytutilfinning, hiti, og veikindagirni, og sjá má að öll þessi einkenni tengjast því að maður er ekki með nægilegt magn af eðlilegum blóðfrumum. Hvítblæði má greina með blóðprufu eða beinmergsástungu.[2]
Beinar orsakir hvítblæðis eru ekki þekktar, en talið er að sjúkdóminn megi rekja til samblöndu erfða- og umhverfisþátta. Áhættuþættir eru meðal annars reykingar, jónandi geislun, ákveðin efni eins og bensen, fyrri saga um krabbameinsmeðferð, og Downs-heilkenni.[3]
Til eru margar mismunandi gerðir, helstu gerðirnar eru:
- Brátt eitilfrumuhvítblæði
- Hægfara eitilfrumuhvítblæði
- Brátt mergfrumuhvítblæði
- Hægfara mergfrumuhvítblæði